Umhverfisvöktun eldissvæða

Lífrænt álag frá fiskeldi vaktað með fjölbreytni botndýrasamfélaga og breytingum á styrk lífrænna efna.

Uppsöfnun lífræns efnis undir sjókvíum hefur áhrif á botndýralíf. Með því að mæla breytingar á styrk lífrænna efna og rannsaka breytingar í samfélögum hryggleysingja á botni fást nákvæmar upplýsingar um bein áhrif fiskeldis á umhverfið.

Samstarfsaðilar

Hábrún
ÍS 47
Ice Fish Farm
Arnarlax

Vöktun eldissvæða

Sjáðu raungögn um styrk lífrænna efna og áhrif þeirra á botndýrasamfélög

Uppsöfnun lífræns efnis undir sjókvíum hefur áhrif á botndýralíf. Lífrænt kolefni (TOC), köfnunarefni (TN), fosfór (TP) og oxunargildi (ORP) er mælt til að fylgjast með breytingum. Samspil efnamælinga og breytinga í samfélögum botndýra gefur því mjög skýra mynd af stöðu lífríkisins á hverjum tíma. Þessar upplýsingar eru forsenda þess að starfrækja fiskeldi í sátt við umhverfið. Vöktun á umhverfisþáttum fer fram á þremur mismunandi tímum í eldisferlinu: Áður en eldi hefst á eldissvæði til að meta hvert grunn ástandið er á eldissvæði (grunn sýnatökur). Þegar eldi hefur náð 75% af leyfilegum lífmassa eldissvæðis (hámarkssýnatökur). Þegar hvíldartíma eldissvæði líkur, venjulega 3 mánuðum eftir að slátrun líkur (hvíldarsýnatökur)

Fiskeldissvæði

Fiskeldi er nú stundað á Vestfjörðum og Austfjörðum.

Botndýrasamfélög

Breytingar á botndýrasamfélögum eru stöðugt að eiga sér stað. Hér er hægt að fylgjast með breytingum frá ári til árs.

Burðarþolsmat

Mat á þoli fjarða eða afmarkaðra hafsvæða til að taka á móti auknu lífrænu álagi án þess að það hafi óæskileg áhrif á lífríkið.

Efnamælingar

Þegar verið er að vakta umhverfisþætti fiskeldis eru efni sem geta valdið ofauðgun mæld. Efnin eru heildar lífrænt kolefni (TOC), heildar köfnunarefni (TN), heildar fosfór (TP) og oxunargildi (ORP).

OSZAR »